Segir Glasner ekki vera með samkomulag við Milan

Glasner vann tvo titla á tveimur árum við stjórnvölinn hjá Crystal Palace.

Mynd: EPA

Amorim stóðst ekki væntingar á Old Trafford.

Ítalskir fjölmiðlar kepptust í vikunni við að greina frá því að Oliver Glasner hafi náð samkomulagi við AC Milan um að taka við þjálfarastarfinu. Þeir sögðu að Glasner væri eingöngu að bíða eftir að Milan næði samkomulagi við Ralf Rangnick, núverandi landsliðsþjálfara Austurríkis, um að taka við sem yfirmaður fótboltamála.
Fótboltafréttamaðurinn Fabrizio Romano segir ekki mikið vera til í þeim fregnum. Hann segir að Milan og Glasner hafi rætt saman, en viðræðurnar séu ekki komnar langt.
Romano segir að Matthias Jaissle, þjálfari Al-Ahli í Sádi-Arabíu, komi til greina í þjálfarastarfið hjá Milan ásamt Rúben Amorim, fyrrum þjálfara Manchester United.
Mauricio Pochettino, landsliðsþjálfari Bandaríkjanna, hefur einnig verið nefndur til sögunnar af fjölmiðlum á Ítalíu sem mögulegur arftaki hjá Milan.
Massimiliano Allegri var rekinn úr þjálfarastólnum hjá Milan eftir hörmulegan endi á síðustu leiktíð þegar liðinu mistókst að landa Meistaradeildarsæti í Serie A. Allegri var rekinn ásamt stórum hluta stjórnenda félagsins. Það er því mikil enduruppbygging að eiga sér stað innan herbúða Milan.

TENGT EFNI
Glasner bíður eftir Rangnick