Fotbolti.net
13.06.26 - 18:54
Gylfi Már Þórðarson

Rúnar Páll: Svekkjandi að fá þetta í andlitið frá dómurunum

Rúnar Páll Sigmundsson - þjálfari Gróttu

Rúnar Páll Sigmundsson - þjálfari Gróttu

Canon

Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson

Mjólkurbikarinn
Rúnar Páll Sigmundsson var að vonum svekktur að leik loknum þegar Fylkismenn slógu Gróttu úr Mjólkurbikarnum í lokaleik 8-liða úrslitanna á Tekk-vellinum í dag.

"Við skorum sjálfsmark þegar það er ein mínúta eftir af venjulegum leiktíma, fram að því hafði ekkert verið of mikið að gerast hjá þeim og við með fullt vald á leiknum. Við fáum þetta mark í andlitið sem er mjög svekkjandi."
Rúnar var ekki ángæður með dómarana í dag.

"Þegar hálftími er eftir brýtur Arnór Breki Ásþórsson illa af sér, við fáum að halda sókninni áfram en síðan fattar dómarinn ekki hver það er sem braut af sér. Það hefði átt að vera hans annað gula spjald og þar með rautt. Mér finnst það vera fáránlega lélegt af dómurum leiksins, þeir eru fjórir, að sjá það ekki hver brýtur á honum. Þeir hefðu þá verið manni færri síðasta hálftíma leiksins og það hefði breytt gangi leiksins. Síðan skora þeir þriðja markið sem er bara rangstaða, hann er langt fyrir innan. Þetta er svekkjandi þegar við leggjum svona hart að okkur að fá þetta í andlitið frá dómurunum."

Aðspurður hvort að honum hafi fundist Gróttumenn hafa gert nóg til að vinna leikinn sagði Rúnar:

"Það fannst mér. Við vorum með leikinn í okkar höndum þegar það er mínúta eftir. Þegar við förum í fimm manna línu er ekkert að gerast hjá þeim, við ráðum við allt. Svo koma klaufaleg mistök hjá okkur, samskiptaleysi á milli hafsents og markmanns, það breytti gangi leiksins, við hefðum unnið leikinn hefðum við ekki fengið þetta mark á okkur."


Allt viðtalið við Rúnar Pál er í spilaranum hér að ofan
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.