Fotbolti.net
13.06.26 - 17:27
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson

Jeffs segir að það vantaði stemmingu, baráttu og vilja hjá Breiðablik í dag

Jeffs segir að það vantaði stemmingu, baráttu og vilja hjá Breiðablik í dag
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz

„Þær skora þrjú mörk og við skorum bara eitt. Ég veit ekki hvort að þetta sé sanngjarnt eða ekki, mér fannst vera meiri stemming, barátta og vilji hjá Stjörnuliðinu í dag en hjá okkur" sagði Ian Jeffs, þjálfari Breiðabliks eftir 3-1 tap á heimavelli gegn Stjörnunni.

Jeffs segir að það vantaði mikið upp á í sóknarleiknum og varnarleiknum.


„Það vantaði flæði í okkar sóknarleik, það vantaði hreyfingu á boltann og að finna lausnir aðeins betur. Varnarlega séð þá vantar okkur eitthvað sem við höfum verið góðar í, repress og vinna boltann aftur. Svona rest defence, mér fannst vanta upp á það í dag."

Eru mörkin sem þið fáið á ykkur klaufaleg, á að gera betur?

„Já, mér fannst þetta vera klaufalegt hjá okkur. Fyrsta markið, svona skot frá tuttugu metrum, þar sem við vorum að spila út frá markinu. Mörkin tvö og þrjú koma úr skyndisókn, en já það á klárlega að gera betur."

Næsti leikur er úti leikur gegn ÍBV, hvernig leik ertu að búast við?

„Leikurinn í dag sýndi það ef þú mætir ekki nógu vel til leiks, þá taparðu í þessari deild. Við erum að undirbúa okkur fyrir þann leik. ÍBV eru virkilega vel skipulagðar og það er erfitt að skora á móti þeim."

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.