Amorim færist nær Milan

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Mikið hefur verið rætt og ritað um mögulegan arftaka Massimiliano Allegri í þjálfarastólnum hjá AC Milan og virðist Portúgalinn Rúben Amorim líklegastur til að taka við taumunum.
Ítalskir fjölmiðlar töldu Oliver Glasner og Ralf Rangnick vera á leið til Milan en svo virðist ekki vera. Fabrizio Romano er meðal fréttamanna sem hafa bent á að Matthias Jaissle og Amorim séu líklegri til að fá starfið heldur en Glasner.
Amorim hefur verið án starfs síðan hann var rekinn frá Manchester United í janúar en þar áður gerði hann garðinn frægan hjá Sporting CP.
Hann var einn af eftirsóttustu stjórum Evrópu undir lok dvalarinnar hjá Sporting en stóðst ekki væntingar hjá Man Utd. Hann hélt starfinu á Old Trafford í rúmt ár áður en hann var rekinn og Michael Carrick ráðinn í staðinn.
Amorim er 41 árs gamall og lék 14 landsleiki fyrir Portúgal á ferli sínum sem atvinnumaður í fótbolta. Hann gerði flotta hluti við stjórnvölinn hjá Casa Pia og Braga í heimalandinu áður en hann tók við Sporting og flutti svo til Manchester.

TENGT EFNI