Fotbolti.net
13.06.26 - 19:06
Gylfi Már Þórðarson

Theodór Ingi - Sem betur fer náðum við markinu í lokin

Auglýsing
Theodór Ingi átti mjög góðan leik í dag

Theodór Ingi átti mjög góðan leik í dag

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mjólkurbikarinn
Í síðasta leik 8-liða úrslita Mjólkurbikarsins slógu Fylkismenn Gróttu úr leik með 4-2 sigri á Tekk-vellinum í Árbæ. Ljóst er að eitt Lengjudeildarlið verður í úrslitum Mjólkurbikarsins í ár en Fylkismenn taka á móti Aftureldingu í undanúrslitum.

Theodór Ingi Óskarsson átti frábæran leik og var að öðrum ólöstuðum maður leiksins. Aðspurður hvað Fylkismenn gætu gert til að komast í úrslitin sagði Theodór:
"Það er bara einn leikur í einu. Við erum búnir með þennan leik og nú er einbeiting bara á leikinn á miðvikudag á móti Grindavík, við hugsum bara þannig. Við erum ekkert farnir að hugsa út í leikinn gegn Aftureldingu."

"Mér fannst við vera með tökin allan leikinn en þeir nýttu sín tækifæri en sem betur fer náðum við markinu þarna í lokin og unnum þennan leik."

"Það var ekkert sem kom okkur á óvart í leik Gróttumanna. Það eru nokkrir sem þekkja Rúnar Pál mjög vel. Hann spilar sinn fótbolta og við vissum fyrir leik hvernig þetta yrði."

Allt viðtalið við Theodór Inga er í spilaranum hér að ofan
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.