13.07.06 - 16:43
Stefán Guðberg Sigurjónsson
Gianluca Pagliuca til Ascoli (Staðfest)

Pagliuca verður fertugur á þessu ári en er ennþá í fullu fjöri

Mynd: Getty Images

Pagliuca verður fertugur á þessu ári en er ennþá í fullu fjöri

Mynd: Getty Images
Ascoli gengu í dag frá kaupunum á fyrrum ítalska landsliðsmarkverðinum Gianluca Pagliuga frá Bologna. Ascoli er í Serie A og má því segja að þetta sé skref uppá við en hann var ekki ánægður hjá Bologna.
,,Bologna munu eiga sinn stað í hjartanu mína en það var illa farið með mín mál. Í janúar þegar ég gat farið til Fiorentina hafði ég áhuga en fór ekki. Síðan eftir síðasta leikinn í deildinni talaði ég við forsetann og sagðist vilja vera áfram. Hann sagðist ætla að hringja í mig en ég er ennþá að bíða" sagði Pagliuca.
Pagliuca, sem var meðal annars milli stangana hjá Ítalíu á HM94 og 98, er að byrja sitt 19. tímabil í Serie A með 569 leiki á bakinu en metið á að sjálfsögðu goðsögnin Paolo Maldini.
Pagliuca, sem var meðal annars milli stangana hjá Ítalíu á HM94 og 98, er að byrja sitt 19. tímabil í Serie A með 569 leiki á bakinu en metið á að sjálfsögðu goðsögnin Paolo Maldini.
