Fotbolti.net
13.07.06 - 18:29
Stefán Guðberg Sigurjónsson

Fabio Grosso til Inter (Staðfest)

Grosso tryggði Ítalíu sigurinn á HM

Grosso tryggði Ítalíu sigurinn á HM

Canon

Mynd: Getty Images

Ítalski landsliðsmaðurinn Fabio Grosso gekk endanlega í raðir Inter frá Palermo í dag. Félögin tvö sömdu fyrir HM að kaupverðið myndi vera fjórar milljónir punda og var Grosso í Milan í dag til að ganga frá sölunni.
Grosso skrifaði undir fjögurra ára samning en hann eyddi tíma með bæði eigandanum Massimo Moratti og síðar Roberto Mancini. Hann verður hinsvegar ekki kynntur fyrir fjölmiðlum fyrr en hann kemur úr sumarfríi.

Þó að Inter sé búnir að vera á eftir þessum snjalla vinstri bakverði í langan tíma gerði ég frammistaða hans á HM ekkert nema að bæta álitt þeirra á honum en hann spilaði feykilega vel og skoraði meðal annars í vítaspyrnunni sem tryggði Ítölum sigurinn.

Juventus og Milan voru einnig talin vera á eftir Grosso en Inter urðu fyrri til, enda hin tvö félögin þessa dagana í réttarhöldum varðandi stóra skandalinn á Ítalíu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.