Fotbolti.net
13.07.07 - 13:09
Arnar Geir Halldórsson

Chopra til Sunderland (Staðfest)

Chopra í leik gegn Tottenham

Chopra í leik gegn Tottenham

Canon

Mynd: Getty Images

Nýliðar Sunderland hafa gengið frá kaupum á Michael Chopra en kappinn gekkst undir læknisskoðun nú fyrir stundu.
Talið er að Roy Keane hafi þurft að punga út 5 milljónum punda en Chopra var keyptur til Cardiff á hálfa milljón punda fyrir einungis ári síðan en þá kom hann frá Newcastle.

Chopra skoraði 22 mörk í Championship deildinni á síðustu leiktíð og vildi Dave Jones stjóri Cardiff halda kappanum hjá félaginu.

Þetta eru þriðju kaup Sunderland í sumar en Roy Keane hefur einnig fengið varnarmennina Russell Anderson og Greg Halford til liðs við sig. Dave Nugent var við það að skrifa undir hjá Sunderland er Roy Keane hætti við þau kaup og gekk Nugent í herbúðir Portsmouth.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.