Fotbolti.net
13.07.07 - 13:36
Stefán Guðberg Sigurjónsson

Ryan Babel til Liverpool (Staðfest)

Ryan Babel verður númer 19 hjá Liverpool

Ryan Babel verður númer 19 hjá Liverpool

Canon

Mynd: Getty Images

Liverpool hefur gengið frá kaupunum á hollenska landsliðsmanninum Ryan Babel frá Ajax Amsterdam fyrir 11,5 milljónir punda.
Þessi 20 ára gamli sóknarmaður hefur skrifað undir fimm ára samning þar og hefur stjórinn Rafael Benitez núna eytt meira en 40 milljónum punda í leikmenn þetta sumarið.

,,Ég hlustaði á þá og ég hafði mjög góða tilfinningu fyrir klúbbnum. Ég tók ákvörðun með hjartanu og þjálfarinn hefur stórar áætlanir fyrir mig,” sagði Babel.

Babel viðurkenndi að það var erfið ákvörðun að fara frá Ajax, þar sem hann spilaði sinn fyrsta lek fyrir félagið sautján ára gamall árið 2004.

,,Ég hitti Rafael Benitez og á þeirri stundu vissi ég að samningurinn myndu ganga í gegn. Hann er hinn fullkomni tengdapabbi. Hann veit mikið um fótbolta og hann sagði mér að ég myndi vera berjast um stöðu við sex leikmenn í fjórum stöðum. Ég hef góða tilfinningu fyrir þessu.”

,,Ég hitti Dirk Kuyt á æfingu, sem ég þekkti frá landsliðinu. Á þeirri stundu fannst mér hann ekki vera keppinautur en ég býst við að það muni gerast. Það var mjög mikilvægt hvernig stjórinn talaði við mig, hvernig ég myndi passa inn í liðið hans. Eftir samtalið vissi ég að það var rétt ákvörðun.”

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.