13.07.07 - 15:19
Magnús Már Einarsson
David Healy til Fulham (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Fulham hefur keypt norður-írska framherjann David Healy frá Leeds á 1,5 milljónir punda. Hjá Fulham hittir hann fyrir Lawrie Sanchez fyrrum landsliðsþjálfara Norður-Íra.
Healy sem er markahæsti leikmaður Norður-Íra frá upphafi með 29 mörk í 59 leikjum gerði fjögurra ára samning við Fulham.
,,Auðvitað þekki ég Lawrie Sanchez vel og á tíma hans með norður-írska landsliðið hefur hann gefið mér mikinn stuðning svo að ég hlakka mikið til að spila undir stjórn hans í úrvalsdeildinni," sagði hinn 27 ára gamli Healy.
Fulham hefur fengið Aaron Hughes, Steven Davis og Chris Baird til liðs við sig í sumar og því er Healy fjórði leikmaðurinn sem kemur til liðsins.

Heimild: BBC