13.07.16 - 21:52
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Þórður Þórðar: Fannst mínar stelpur gefast upp
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

„Ég get ekki sagt það að ég sé ánægður með það að tapa, en svona framan af þá spiluðum við sterka vörn og ég er ánægður með það,\" sagði Þórður Þórðarson, þjálfari ÍA, eftir 3-0 tap gegn Blikum í Pepsi-deild kvenna í kvöld.
Lið er á botni deildarinnar með aðeins eitt stig, en Þórður segir að það hafi ekki mikið vantað upp á í kvöld.

„Það vantaði bara að skora mörk, það var ekki annað. Við stóðum í þeim svona fram eftir leik, en þegar fyrsta markið kom og sérstaklega þegar annað markið kom þá fannst mér mínar stelpur gefast upp.\"
Þrátt fyrir að Skagstúlkur séu aðeins með eitt stig eftir 8. umferðir hefur Þórður litlar áhyggjur. Þórður var spurður út í möguleika á að halda sætinu í deildinni.
„Það er nóg eftir ég hef engar áhyggjur af því. Við erum að fara að spila núna við lið sem eru í kringum okkur eins og KR, FH, Selfoss, Fylkir og Þór/KA. Þetta eru lið sem við eigum að geta gert vel á móti og ég held að við munum gera það.\"
Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.