Fotbolti.net
13.07.26 - 16:55
Kári Snorrason

„Ekki þannig að Dóri ætti að missa stöðuna til frambúðar“

Óskar var ánægður með Halldór að leik loknum.

Óskar var ánægður með Halldór að leik loknum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Halldór Snær Georgsson sneri aftur í mark KR í gær er liðið vann 5-2 sigur á ÍBV. Sigurpáll Sören Ingólfsson varði mark KR-inga í leiknum þar áður, sem var gegn Þór, og enduðu leikar 3-3.

Halldór hafði staðið á milli stanganna í öllum leikjum KR þar áður, að fyrsta leik utanskyldum þegar Arnar Freyr Ólafsson meiddist alvarlega.

Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, var spurður í viðtali eftir leik út í markvarðarbreytinguna.
Segir Sigurpál hafa átt skilið tækifæri - „Ekki að leita að blórabögglum"
TENGT EFNI

Segir Sigurpál hafa átt skilið tækifæri - „Ekki að leita að blórabögglum"

Lestu um leikinn: KR 5 - 2 ÍBV
„Þegar ég gerði breytinguna á móti Þór fannst mér Spalli (Sigurpáll) eiga skilið að fá leik. Ég var ekkert endilega að hugsa um að hann ætti að spila tíu leiki í röð. Þetta var ekki þannig að Dóri ætti að missa stöðuna til frambúðar. Spalli spilaði þann leik – það var ströggl í fyrri hálfleik, svo vann hann sig frábærlega inn í leikinn.“

„Dóri kemur inn í dag og var virkilega góður. Ég er gríðarlega ánægður með hann. Hann var frábær á boltanum og ég held að þetta sé langbesti leikurinn hans síðan hann kom í KR á boltanum.

Það reyndi ekkert mikið á hann í markinu. Hann gerði það sem hann þurfti að gera vel. Auðvitað var kannski högg fyrir hann að fara á bekkinn í síðasta leik. Menn eru ekki dæmdir af því hvernig þeir eru þegar þeim gengur vel, heldur hvernig þeir eru í mótlæti. Hann svaraði því vel í dag,“
sagði Óskar.
Sigurpáll fagnar með stuðningsmönnum eftir sigurinn í gær ásamt Stefáni Árna og Óskari Hrafni.

Sigurpáll fagnar með stuðningsmönnum eftir sigurinn í gær ásamt Stefáni Árna og Óskari Hrafni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Óskar Hrafn: Róbert Elís verður ekki endurkallaður

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.