Fotbolti.net
13.07.26 - 16:27
Mate Dalmay
Skrifar frá: Györ

Óskar væri alveg til í vatnspásur - Góður auglýsingagluggi

Auglýsing
Óskar Borgþórsson í Györ í dag.

Óskar Borgþórsson í Györ í dag.

Canon

Mynd: Víkingur/Hörður Ágústsson

Víkingar eru að undirbúa sig fyrir seinni leikinn gegn ungversku meisturunum í ETO Györ. Fyrri leikur liðanna endaði með 1-0 sigri Víkings í síðustu viku og seinni leikurinn fer fram ytra á morgun.

Það er sól og blíða í Ungverjalandi og Óskar Borgþórsson segir að hann væri alveg til í að taka vatnspásur eins og tíðkast á HM, ef hitastigið verður mikið meðan á leik stendur.
Tala um stórslys ef Györ tapar - Gylfi segir Víkinga fulla sjálfstrausts
TENGT EFNI

Tala um stórslys ef Györ tapar - Gylfi segir Víkinga fulla sjálfstrausts

„Ég væri alveg til í það! Ég er alveg til í að taka fundi með þjálfaranum, fá mér vatn og slaka aðeins á," segir Óskar en ekki er þó búist við að það þurfi að nota vatnspásur á morgun

Óskar býst við fjörugum og skemmtilegum hitaleik en það er mikil pressa á ETO Györ og fjölmiðlar tala um að það yrði stórslys ef þeir fara ekki áfram.

„Ég held að þeir muni ekki liggja til baka eins og Íslandi. Ég held að þeir verði aðeins meira með boltann, verði aggressífari og sæki meira á okkur. Ég býst við hörkuleik og við ætlum að jafna þá í hörkunni á þeirra heimavelli. Þetta verður veisla á morgun."

Óskar, sem er 22 ára, hefur spilað frábærlega á tímabilinu og viðurkennir á að líta á Evrópuleikina sem góða auglýsingaglugga.

„Ég geri það alveg. Maður er alltaf að reyna að toppa sig og komast lengra áfram, ég horfi á þetta sem möguleika á að taka næsta skref. Núna er ég bara að hugsa um að vinna leikinn á morgun og komast í næsta einvígi með Víkingi. Hausinn er á þeim stað."

Sjáðu viðtalið í heild sinni í sjónvarpinu hér að ofan.
Óskar væri alveg til í vatnspásur - Góður auglýsingagluggi
Canon

Mynd: Víkingur/Hörður Ágústsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.