Fotbolti.net
13.07.26 - 16:50
Mate Dalmay
Skrifar frá: Györ

Sölvi um leikinn í Györ og stöðuna á hópnum - „Ekki að fara að verja neitt forskot“

Auglýsing
Sölvi Geir Ottesen.

Sölvi Geir Ottesen.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingar eru að undirbúa sig fyrir seinni leikinn gegn ungversku meisturunum í ETO Györ. Fyrri leikur liðanna endaði með 1-0 sigri Víkings í síðustu viku og seinni leikurinn fer fram ytra á morgun.

Fótbolti.net ræddi við Sölva Geir Ottesen, þjálfara Víkings, í Györ í dag. Víða var komið við í spjallinu og meðal annars rætt um meiðsli Elíasar Más Ómarssonar sem sleit krossbönd í fyrri leiknum.
Elías Már með slitið krossband
TENGT EFNI

Elías Már með slitið krossband

„Það er mikið áfall að missa Elías Má í krossbandaslit. Hann hefur verið frábær fyrir okkur, raðað inn mörkum og virkilega mikilvægur. Þetta er líka áfall fyrir hann; var að koma sér vel inn í hlutina hjá Víking og leið. Hann var alltaf taka meira og meira pláss í klefanum og virkilega svekkjandi að sjá á eftir honum í þessi meiðsli," segir Sölvi.

Gunnar Vatnhamar tók ekki þátt í fyrri leiknum þar sem hann meiddist í upphitun.

„Hann tognaði í upphitun í síðasta leik en við erum með stóran og góðan hóp; Sveinn Gísli kom virkilega vel inn í hlutverkið hans Gunnars í síðasta leik."

Sölvi segir að Víkingar séu að skoða sín mál og útilokar ekki að það verði eitthvað gert núna í glugganum sem opnar eftir nokkra daga.

Varðandi leik morgundagsins segir Sölvi að Víkingar ætli sér að spila sinn leik og ekki reyna að verja þessa eins marks forystu eftir fyrri leikinn.

„Við erum ekki að fara að verja neitt forskot núna, við mætum með sama leikplan og síðast. Við viljum spila okkar fótbolta og taka stjórn á leiknum. Ef við dettum út þá dettum við út á okkar hátt. Það er mikilvægt að hafa hugrekki til að halda í boltann og erum ekki að verja neitt."

Viðtalið má sjá í heild hér að ofan en þar tjáir Sölvi sig nánar um leikinn og um ýmislegt fleira, til dæmis ummæli sín um undirlagið á Víkingsvelli.
Elías Már í fyrri leiknum gegn Györ.

Elías Már í fyrri leiknum gegn Györ.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sölvi um leikinn í Györ og stöðuna á hópnum - „Ekki að fara að verja neitt forskot“
Canon

Mynd: Víkingur/Hörður Ágústsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.