Fotbolti.net
13.08.05 - 08:35
Hafliði Breiðfjörð

David Vadon til Manchester City (Staðfest)

Pearce fékk sér ungan markvörð

Pearce fékk sér ungan markvörð

Canon
Manchester City hafa samið við ungverska markvörðinn David Vadon eftir að hann heillaði Stuart Pearce á reynsluæfingum. Vadon fékk tveggja ára samning hjá félaginu en hann kemur frá Debrecen í heimalandinu sem er sama lið og leikur gegn erkiféndum City, í Manchester United í forkeppni Meistaradeildarinnar.
Hann er fastur maður í U-17 ára landsliði Ungverjalands en hann vakti fyrst athygli í fyrrahaust er honum var boðið til reynslu. Faðir hans, Lajos, var áður markvarðaþjálfari hjá Debrecen. Hann útskýrði hvernig félagaskiptin komu til.

,,Á síðasta ári fékk ungverska U-17 ára landsliðið boð frá enska knattspyrnusambandinu um að leika gegn þeim vináttuleik. Leikurinn fór fram á leikvangi Preston North end 17. nóvember og David vakti áhuga unglinganjósnara Manchester City í leiknum sem lauk með markalausu jafntefli."

,,Honum var boðið til reynsluæfinga í tíu daga. Þeim líkaði við frammistöðu hans og í sumar ákváðu þeir að semja endanlega við hann."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.