Fotbolti.net
13.08.05 - 12:17
Magnús Már Einarsson

Luyindula til Auxerre á láni (Staðfest)

Luyindula til Auxerre á láni (Staðfest)
Canon
AJ Auxerre hefur fengi franska framherjann Peguy Luyindula að láni frá Marseille út tímabilið. Auxerre vann þar með samkeppni við Portsmouth sem vildi einnig fá Luyindula í sínar raðir.
Luyindula sem er 26 ára á fjóra landsleiki að baki með Frökkum og hefur skorað í þeim eitt mark. Þessi fyrrum leikmaður Olympique Lyon og Racing Strasbourg mun hitta fyrir hjá Lyon Jacques Santini sem þjálfaði Luyindula bæði hjá Lyon og í franska landsliðinu.

Luyindula var markahæsti leikmaður Marseille á síðustu leiktíð með tíu mörk og mun hann styrkja lið Auxerre í frönsku deildinni í vetur.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.