13.08.26 - 17:06
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Hákon Haralds orðaður við Newcastle út af einkaflugi

Mynd: EPA

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: EPA
Á samfélagsmiðlinum X er landsliðsmaðurinn Hákon Arnar Haraldsson orðaður við enska úrvalsdeildarfélagið Newcastle. Það kemur til vegna einkaflugs frá Reykjavík til Newcastle í dag sem stuðningsmaður reiknaði út að gæti verið út af mögulegum félagaskiptum og hugsaði að Hákon, sem hefur áður hefur verið bendlaður við Newcastle, gæti verið í flugvélinni. Fjölmargar einkaflugvélar voru á Íslandi í gær í tengslum við almyrkvann.
Hákon er leikmaður Lille í Frakklandi sem verður í Meistaradeildinni í vetur og ekki eru taldar miklar líkur á því að hann færi sig um set fyrir gluggalok.
Newcastle er í leikmannaleit eftir að hafa misst öfluga leikmenn í sumar og takmarkað hefur gengið á markaðnum til þessa. Hákon hefur áður verið orðaður við Newcastle því í janúar í fyrra var sagt frá því að njósnarar Manchester United og Newcastle hefðu verið að fylgjast með honum og var hann þá einnig orðaður við Tottenham.
Í dag hefur hann einnig verið nefndur í tengslum við stórliðið Galatasaray í Tyrklandi. Í færslu á X segir að Galatasaray sé að fá nýjan mann til að spila í 'tíunni' og talið að það sé Hákon. Samkvæmt heimildum Fótbolti.net hefur engin fyrirspurn borist frá félögunum í Hákon á þessum tímapunkti.

TENGT EFNI
Hákon fær launahækkun hjá Lille (Staðfest)
Hugsa að það sé ekki mikið til í þessum orðrómi en Hákon væri frábær viðbót fyrir Newcastle???? https://t.co/s440BZybSB
— Jón Júlíus Karlsson (@JonJKarlsson) August 13, 2026
I have spent all morning reviewing flights over the last couple of weeks. A player who fits the profile & would be an unreal signing is Hákon Arnar Haraldsson of Lille. Brilliant creativity & vision in between the lines. Composure,willing runner,set pieces full package #nufc
— The Masked Tweeter (@MaskedTweeta) August 13, 2026
????ÖZEL - Hákon Arnar Haraldsson, menajerler arac?l??? ile Galatasaray’a önerildi! https://t.co/c4NGbQoB06
— Ravex (@Ravex_10) August 13, 2026
Purely speculative rumours following this flight being added today ???????? #NUFC pic.twitter.com/dwvWH2NSRJ
— The Toon Scout (@TheToonScout) August 13, 2026

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson