13.09.21 - 21:02
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía: Arnautovic lagði upp sigurmarkið

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Bologna 1 - 0 Verona
1-0 Mattias Svanberg ('78)
1-0 Mattias Svanberg ('78)
Sænski miðjumaðurinn Mattias Svanberg gerði eina mark leiksins er Bologna lagði Verona að velli í ítalska boltanum í kvöld.
Liðin mættust í eina leik dagsins og úr varð mikill baráttuleikur þar sem allt var í járnum þar til á lokakaflanum.
Svanberg skoraði þá eftir undirbúning frá Marko Arnautovic og tryggði Bologna dýrmæt stig.
Sinisa Mihajlovic er við stjórnvölinn hjá Bologna og verðskulduðu lærisveinar hans sigurinn á heimavelli. Þeir voru mun betri í síðari hálfleik og gáfu varla færi á sér.
Bologna er með 7 stig eftir 3 umferðir á meðan Verona er án stiga.