Fotbolti.net
13.10.26 - 18:14
Brynjar Ingi Erluson

Mun velja á milli Barcelona og Real Madrid

JJ Gabriel

JJ Gabriel

Canon

Mynd: Instagram/jjnr10

Blaðamaðurinn Jose Alvarez, sem er fastagestur í spænska sjónvarpsþættinum El Chiringuito, telur að JJ Gabriel, leikmaður Manchester United, muni velja á milli Barcelona og Real Madrid þegar hann tekur ákvörðun um framtíð sína.
Ungstirnið hefur ekki ákveðið sig
TENGT EFNI

Ungstirnið hefur ekki ákveðið sig

Gabriel er aðeins 16 ára gamall en hefur óskað eftir því að losna frá Man Utd þar sem hann vill fá meiri spilatíma.

Samkvæmt enskum fjölmiðlum hafa fjögur stórlið verið á eftir honum, en það eru Barcelona, Bayern München, Paris Saint-Germain og Real Madrid.

Bayern hefur fundað nokkrum sinnum með Gabriel og fulltrúum hans en launakröfur leikmannsins virðast hafa sett strik í reikninginn. Alvarez segir að Bayern sé nú úr leik í baráttunni um Gabriel og sömu sögu sé að segja af PSG.

Því virðist valið standa á milli Barcelona og Real Madrid og búist er við að Gabriel taki ákvörðun um framtíð sína á næstunni.

Man Utd hefur þó ekki gefið upp alla von um að halda honum og reynir enn að sannfæra hann um að vera áfram. Eins og staðan er núna eru hins vegar litlar líkur á því að það takist.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.