06.10.26 - 23:14
Brynjar Ingi Erluson
Ungstirnið hefur ekki ákveðið sig

Mynd: Man Utd

Mynd: Man Utd
JJ Gabriel, leikmaður Manchester United, og fjölskylda hans hafa ekki enn ákveðið næstu skref og ætla að gefa sér tíma til þess samkvæmt Sky Sports.

TENGT EFNI
Bayern í viðræðum við JJ Gabriel - Gerir háar launakröfur
Englendingurinn varð 16 ára í dag og hefur óskað eftir að United afskrái sig svo hann geti gengið til liðs við annað stórlið í Evrópu.
Barcelona og Real Madrid eru sögð leiða baráttuna um hann en Bayern München og Paris Saint-Germain fylgjast einnig náið með stöðunni. Samkvæmt Sky hafa Gabriel og fjölskylda hans þó ekki enn ákveðið hvert hann fer.
Sky í Þýskalandi hefur sagt frá því að Bayern hafi rætt við föruneyti kappans, en hann er sagður vilja fá milljónir evra í árslaun og háan undirskriftarbónus.
Nú er beðið eftir að hann fái kýpverskt vegabréf svo hann geti farið frá United sem fyrst og skrifað undir atvinnumannasamning við annað félag.
Sky segir United íhuga málshöfðun fari hann til annars félags í Evrópu. Það virðist þó ekki valda Gabriel og fjölskyldu hans áhyggjum á meðan þau vega og meta hvaða kostur henti honum best.