13.10.26 - 17:41
Brynjar Ingi Erluson
Segir að Messi muni ekki krýna næsta sigurvegara

Lionel Messi

Mynd: EPA

Lionel Messi

Mynd: EPA
Lionel Messi, einn besti fótboltamaður sögunnar, var sagður ætla að afhenda næsta sigurvegara Ballon d'Or-verðlaunanna þann 26. október næstkomandi. Fabrizio Romano segir hins vegar ekkert hæft í þeim fregnum.
Messi hefur unnið þessi eftirsóttu verðlaun átta sinnum, oftar en nokkur annar leikmaður í sögunni. Cristiano Ronaldo kemur næstur með fimm verðlaun.
Blaðamaðurinn Juan Jesus greindi frá því í dag að Messi yrði viðstaddur verðlaunahátíðina og fengi það hlutverk að krýna næsta sigurvegara. Romano segir hins vegar ekkert til í því.
Samkvæmt Romano mun Messi ekki afhenda verðlaunin og þá hefur heldur ekki fengist staðfest hvort hann verði yfir höfuð á meðal gesta á hátíðinni.
Harry Kane, Lamine Yamal, Kylian Mbappe og Rodri eru taldir á meðal þeirra sigurstranglegustu í ár. Rodri hefur einu sinni unnið verðlaunin en hinir þrír eiga enn eftir að hreppa gullknöttinn.

???????? Lionel Messi will not be presenting a trophy to any of the winners at the Ballon d’Or, as he has not been invited to do so.
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) October 13, 2026
Also Messi’s attendance at the Ballon d’Or gala has not yet been confirmed. https://t.co/T9rl8X8UdU