13.10.26 - 18:33
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu mörkin: Ída Marín allt í öllu

Ída Marín er með mark og stoðsendingu

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Ísland er 2-0 yfir gegn Króatíu í hálfleik í síðari leik liðanna í undanúrslitum HM-umspilsins á Laugardalsvelli, en Ída Marín Hermannsdóttir hefur farið á kostum og bæði skorað og lagt upp mark.
Lestu um leikinn: Ísland 5 - 0 Króatía
Íslenska liðið hefur haft algjöra yfirburði í leiknum og hefði hæglega getað skorað fimm eða sex mörk.
Ísland fékk hvert dauðafærið á fætur öðru í upphafi leiks og það hlaut að koma að marki. Á 35. mínútu lyfti Ída Marín boltanum inn á teiginn þar sem Hlín Eiríksdóttir náði að koma honum á milli fóta markvarðar Króata og þaðan lak hann í netið.
Ída skoraði síðan sitt fyrsta landsliðsmark skömmu síðar. Sveindís Jane Jónsdóttir keyrði inn í teiginn hægra megin og renndi boltanum út á Ídu sem skoraði með laglegu skoti.
Ísland er þar með komið í 6-0 í einvíginu en mörkin má sjá hér fyrir neðan.