13.10.26 - 19:59
Brynjar Ingi Erluson
„Það er hefndarhugur og hann þarf ekki að vera slæmur“

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Hörður Magnússon segir hefndarhug í íslenska liðinu

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Adda Baldurs hrósaði íslenska liðinu

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Hörður Magnússon og Ásgerður Baldursdóttir ræddu stórglæsilegan 5-0 sigur Íslands á Króatíu á Laugardalsvelli í kvöld, en mikil spenna er fyrir úrslitaeinvígi HM-umspilsins þar sem Portúgal verður að öllum líkindum andstæðingurinn.

TENGT EFNI
Ísland skoraði fimm og er komið í úrslit umspilsins
Íslenska landsliðið sýndi mikla fagmennsku í 5-0 sigrinum á Króatíu í kvöld eftir að hafa unnið fyrri leikinn ytra, 4-0.
Adda var afar ánægð með frammistöðu íslenska liðsins og hafði margt jákvætt að segja eftir leikinn.
„Mjög vel gert í dag. Fimm mörk úr opnum leik, sem er mjög jákvætt, fullt af góðum sóknarlotum, nýliðar sem koma inn á sem setja mark sitt á leikinn og bara margt jákvætt. Steini hlýtur að vera ánægður með leikinn,“ sagði Adda á RÚV.
Hún hrósaði Þorsteini Halldórssyni, þjálfarateymi hans og leikmönnunum fyrir hvernig liðið hefur brugðist við eftir vonbrigðin á EM í sumar.
„Líka eftir erfitt EM seinast, margar spurningar, á Steini að halda áfram, hvað gerist og svona. Hann fær Óla með sér inn og finnst góð ára yfir öllum viðtölum og allt sem hefur verið gert. Það er erfitt að spila svona leiki þó við séum miklu, miklu betra en þetta króatíska lið. Mér fannst við gera þetta af fagmennsku, bæði úti og heima. Stelpurnar og Steini töluðu um það í viðtölum milli leikja að þetta væri ekki búið þó allir vita að þetta var það en koma hér og sýna góða frammistöðu. Það má hrósa fyrir það.“
Portúgal verður að öllum líkindum andstæðingur Íslands í úrslitum umspilsins, en þar á íslenska liðið harma að hefna eftir að hafa misst af sæti á síðasta HM gegn Portúgölum.
Adda telur einnig að aukin samkeppni í íslenska hópnum sé afar jákvæð fyrir framhaldið.
„Steini svaraði þessu mjög vel. Var með hugann við leikinn á móti Portúgal hvað við þurfum að gera betur. Leikmenn koma inn í þetta setja mark sitt á leikinn og svo líka breiddin í hópnum. Diljá kemur inn á og skorar tvö, Katla kemur inn á úti í Króatíu, byrjar leikinn í dag og skorar. Samkeppnin er orðin meiri og það er bara gott fyrir Steina,“ sagði Adda enn fremur.
Hörður tók undir með Öddu og sagði frammistöðu Íslands aðdáunarverða, sérstaklega í ljósi þess að einvígið var svo gott sem búið eftir fyrri leikinn.
„Það er gríðarlegur einhugur hjá Steina og þjálfarateyminu og leikmönnum. Að halda út í 90 mínútur á móti þessu liði sem búið var að klára. Mér fannst það vera aðdáunarvert, bæta í og skora tvö mörk í lokin. Það er græðgi, vilji og að sjálfsögðu að taka þetta með okkur inn í þessa Portúgals-leiki. Það á ýmislegt eftir að gerast, hvernig verður völlurinn og við erum að fara inn í desember. Það ætti að vinna með okkur en mér finnst góður andi í þessu.“
Hann telur að íslenska liðið sé í góðri stöðu fyrir komandi átök gegn Portúgal og að hefndarhugurinn geti reynst mikilvægur.
„Bæði Sveindís og Karólína báðar okkar lykilmenn og báðar að spila vel. Ég held að það hjálpi okkur klárlega að fara í þessa tvo leiki á móti Portúgal. Ég skynjaði það á Steina að það er hefndarhugur og hann þarf ekki að vera slæmur. Það þarf ekkert að mótivera sig rosalega á móti þeim.“
Hann benti einnig á hversu stór áfangi það yrði fyrir íslenska liðið að tryggja sér sæti á HM, enda væri heimsmeistaramótið mun stærra en Evrópumótið.
„Með fullri virðingu fyrir EM sem er mjög stórt mót, en HM er með þjóðir eins og Bandaríkin, Japan og þessar þjóðir sem hafa verið einráðar utan Evrópu. Þetta er helmingi stærra,“ sagði Hörður á RÚV.