Fotbolti.net
13.11.05 - 19:04
Hafliði Breiðfjörð

Kristján Valdimarsson í Grindavík (Staðfest)

Kristján Valdimarsson í Grindavík (Staðfest)
Canon

Mynd: Fylkir.com

Kristján Valdimarsson leikmaður Fylkis hefur ákveðið að ganga til liðs við Grindavík og mun skrifa undir þriggja ára samning við félagið. Kristján mun hinsvegar ekki skrifa undir samninginn fyrr en á fimmtudag og má rekja ástæðu þess til hjátrúar í Grindavík.
Í Grindavík taka menn mark á hjátrú daganna og vilja ekki semja á mánudögum sem eru til mæðu, ekki á þriðjudögum til þrautar og ekki á miðvikudögum til moldar. Því er fimmtudagur fyrsti kostur til að skrifa undir samninginn, fimmtudagur til frama.

Sama var upp á teningunum er Grindavík samdi við Sigurð Jónsson knattspyrnustjóra liðsins en hann náði samkomulagi á sunnudegi en skrifaði svo undir á fimmtudegi. Jóhann Þórhallsson skrifaði svo undir á föstudegi... ...til frægðar.

Kristján Valdimarsson er 21 árs gamall bakvörður sem hefur allan sinn feril leikið með Fylki. Hann fékk fá tækifæri með Fylki í Landsbankadeildinni í sumar, spilaði aðeins átta leiki og þótti mörgum hann hafa staðið sig það vel í þeim leikjum sem hann spilaði að hann ætti skilið fleiri tækifæri.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.