Fotbolti.net
12.11.26 - 19:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Arnar ræddi við bróður sinn um Búlgaríu: Sagði nokkrar góðar sögur

Spilaði á sínum tíma í Búlgaríu

Garðar Gunnlaugs lék á sínum tíma í Búlgaríu.

Garðar Gunnlaugs lék á sínum tíma í Búlgaríu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eimskip
Garðar Gunnlaugsson var á mála hjá búlgarska félaginu CSKA Sofia á árunum 2008-2009. Þangað kom hann eftir að hafa raðað inn mörkum með sænska liðinu Norrköping.

Bróðir Garðars er landsliðsþjálfarinn Arnar Gunnlaugsson. Arnar sat fyrir svörum á fréttamannafundi á Hristo Botev leikvanginum í búlgörsku borginni Plovdiv í dag. Tilefnið er leikur Íslands og Búlgaríu í Þjóðadeildinni annað kvöld.

Arnar var spurður hvort hann hefði rætt við bróður sinn áður en hann kom til Búlgaríu.
Garðar Gunnlaugs: FIFA getur bannað þeim að keppa
TENGT EFNI

Garðar Gunnlaugs: FIFA getur bannað þeim að keppa

„Ég gerði það, nokkrar góðar sögur sem ég ætla ekki að segja hér sem hann kom með," sagði Arnar og hló.

„Þetta er mín fyrsta heimsókn hingað, þótt ótrúlegt megi virðast, eftir öll þessi ár sem ég hef verið í þessu."

„Það er áhugavert að koma hingað, aðstæður eru flottar, ekkert til að kvarta yfir. Við þurfum að „delivera" núna inni á vellinum,"
segir Arnar.

Tími Garðars í Búlgaríu var enginn dans á rósum, eins og sjá má í tengdu fréttunum. Hann skoraði eitt mörk í sjö leikjum fyrir félagið. Samningi hans við félagið var sagt upp í september 2009.

Á morgun verður birt viðtal við umræddan Garðar hér á Fótbolti.net.
Arnar ræddi við bróður sinn um Búlgaríu: Sagði nokkrar góðar sögur
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.