Fotbolti.net
13.11.26 - 12:07
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Niko Hansen kveður Víking (Staðfest)

Verður ætíð hluti af sögu félagsins

Niko Hansen kveður Víking (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Nikolaj Hansen hefur yfirgefið Víking en hann hefur verið leikmaður liðsins frá árinu 2017.

Hann hefur skorað 121 mark í 310 leikjum fyrir félagið oger markahæsti lekmaður í sögu félagsins. Hann hefur fjórum sinnum orðið Íslandsmeistari með Víkingi og fjórum sinnum bikarmeistari. Hann var fyrirliði liðsins tímabilin 2023-24.

Hann hefur verið sterklega orðaður við KA en önnur félög hafa sett sig í samband við danska framherjann.

Niko Hansen fengið þau skilaboð að hann megi líta í kringum sig
TENGT EFNI

Niko Hansen fengið þau skilaboð að hann megi líta í kringum sig

Tilkynning Víkings
Takk fyrir okkur Niko!

Hinn magnaði framherji Nikolaj Hansen kveður Víking eftir 10 ára þjónustu!

Fyrirliðinn Niko kom til Víkings sumarið 2017. á liðnum áratug hefur hann tekið þátt í 310 leikjum fyrir félagið og skorað 121 mark. Hann er markahæsti leikmaður Víkings í efstu deild karla frá upphafi. Hann er sömuleiðis markahæsti leikmaður íslenskra liða í Evrópukeppnum. Niko hefur fjórum sinnum orðið Íslandsmeistari og fjórum sinnum bikarmeistari með Víkingi, en samtals hefur hann unnið 10 stóra titla á Íslandi sem gerir hann að sigursælasta erlenda leikmanni Íslenskrar knattspyrnu frá upphafi.

Framlag Nikolaj verður þó ekki aðeins metið í mörkum, leikjum og titlum. Hann hefur verið mikilvægur hluti af liðsheildinni, innan vallar sem utan, og er í miklum metum hjá samherjum, starfsfólki og stuðningsfólki félagsins. Nikolaj hefur svo sannanlega sett mark sitt á Víking og verður ætíð hluti af sögu félagsins.

Knattspyrnudeild Víkings þakkar Nikolaj innilega fyrir framlag hans og fyrir allar ógleymanlegu stundirnar í rauðu og svörtu treyjunni. Við óskum honum og fjölskyldu hans alls hins besta á nýjum vettvangi.

Hamingjan er er þér alltaf opin!

Niko Hansen kveður Víking (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Niko Hansen kveður Víking (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.