03.11.26 - 20:17
Brynjar Ingi Erluson
Tibbling: Draumur að snúa aftur í sænska boltann

Simon Tibbling

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Rúnar Kristinsson ræddi við Fótbolta.net um Tibbling í gær

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Simon Tibbling

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Simon Tibbling, leikmaður Fram, dreymir um að snúa aftur í sænska boltann, en enn er óljóst hvort það verði í vetur eða síðar.

TENGT EFNI
Rúnar: Jakob bað um að fá að ræða við önnur félög
Tibbling er 32 ára gamall miðjumaður sem var á sínum tíma talinn einn efnilegasti fótboltamaður Svíþjóðar.
Hann samdi við Fram á síðasta ári og hefur nú lokið sínu öðru tímabili með félaginu, sem hafnaði í þriðja sæti Bestu deildarinnar og tryggði sér sæti í Evrópukeppni á næsta tímabili.
Sænski miðillinn Fotbollskanalen ræddi við Tibbling um tímabilið, framtíðina og lífið á Íslandi.
„Þetta hefur gengið nokkuð vel. Ég glímdi við smávægileg meiðsli, tognun og heilahristing, en um leið og ég fór að spila gekk allt vel. Við áttum gott tímabil, vorum í öðru sæti fyrri hluta þess en féllum niður í þriðja sætið í þeim síðari.“
„Á síðasta ári enduðum við í fimmta sæti þannig að þetta er skref fram á við. Nú bíða okkar Evrópuleikir á næsta ári og það verður bara skemmtilegt.“
„Fram er stórt félag í sögu íslensks fótbolta og vill komast aftur á þann stað sem það var áður. Í fyrsta sinn í langan tíma er félagið að berjast um verðlaunasæti og það er magnaður árangur. Félagið vill vera þarna og berjast um titla, þótt Víkingur sé langbesta lið landsins,“ sagði Tibbling.
Svíinn viðurkennir að hann dreymi enn um að snúa aftur heim og spila í sænsku úrvalsdeildinni, en hann útilokar heldur ekki að leika í B-deildinni. Eins og staðan er núna telur hann þó líklegast að hann verði áfram hjá Fram.
„Líklegast er að ég verði áfram. Þegar ég var í Noregi var planið alltaf að snúa heim til Svíþjóðar, en það varð ekkert úr því. Ég fann ekkert sem hentaði mér miðað við meiðslasöguna mína. Svo kom þetta ævintýri upp og ég ákvað að halda áfram.“
„Það er algjörlega óvíst hvort ég snúi aftur, en mig langar það og dreymir um að koma heim. Á sama tíma líður okkur vel hér og við erum að njóta okkar, þannig að við sjáum hvað gerist.“
„Ef ég fengi tækifæri til að spila aftur í Allsvenskunni myndi ég stökkva á það. Ég er algjörlega opinn fyrir því að snúa heim, en mér líður líka mjög vel hér. Draumurinn er samt að spila aftur í Svíþjóð.“
Hann útilokar heldur ekki að spila í sænsku B-deildinni ef rétta tækifærið býðst.
„Ég þyrfti að hugsa málið og skoða möguleikana. Gott lið í B-deildinni gæti verið áhugaverður kostur, en ég hef ekki velt því mikið fyrir mér.“
Tibbling fylgist enn vel með sænska fótboltanum og gleðst sérstaklega yfir góðu gengi tveggja félaga þar í landi.
„Ég fylgist með Allsvenskunni og hef gert það síðan ég yfirgaf Svíþjóð fyrir mörgum árum. Ég og Andreas Engelmark, þjálfari Sirius, erum góðir vinir og ég er ótrúlega ánægður með árangurinn sem hann hefur náð.“
„Ég er líka ánægður fyrir hönd Djurgården, þar sem ég spilaði áður. Staðan í deildinni er góð hjá báðum félögum og það er bara gaman að sjá.“
Tibbling hefur einnig verið að mennta sig sem þjálfari á Íslandi. Hann hefur lokið UEFA B-gráðunni og þjálfar nú Úlfana, en stefnir á að taka UEFA A-gráðuna á næstu árum.
„Ég er búinn að taka UEFA B-gráðuna og er að þjálfa varalið hér á Íslandi. Planið er að þjálfa í eitt eða tvö ár áður en ég tek A-gráðuna. Svo kemur í ljós hvort ég nýti þetta í Svíþjóð eða á Íslandi.“
Hann sér vel fyrir sér að fara út í þjálfun þegar ferlinum lýkur, en enn sem komið er hefur hann meiri áhuga á að vera inni á vellinum.
„Ég elska fótbolta svo mikið að það væri skrítið fyrir mig að gera eitthvað annað. Mér finnst enn skemmtilegra að spila, en það er líka gaman að þjálfa.“
„Ég held áfram að spila fótbolta, en á hvaða stigi verður að koma í ljós. Mig langar að taka þessi námskeið og halda áfram að læra, að minnsta kosti prófa þetta,“ sagði Tibbling.
Rúnar vill halda honum
Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, ræddi við Fótbolta.net í gær um framtíð Tibbling og Jakub Byström. Þar sagðist Rúnar vilja halda Tibbling hjá félaginu og að hann sæi hann vel fyrir sér í Framliðinu á næsta tímabili.
„Varðandi Simon (1994) þá er hann orðinn þetta fullorðinn og maður sér fyrir sér að hann vilji spila meira. Hann á von á öðru barni á nýju ári og við höfum rætt um framtíðina. Ég sé hann alveg fyrir mér sem leikmann Fram á næsta ári, hann er frábær og hefur verið frábær fyrir okkur."
„En menn þurfa að vera tilbúnir að hlutverkið sé ekkert alltaf eins. Þú ert ekkert fastur í liði þegar það eru 30 leikir plús á tímabili. Það þarf breidd, það verður að vera hægt að rúlla á liðinu stundum, gefið mönnum sénsa og hvílt einhverja. Á endanum er það þannig að besti leikmaðurinn og besta liðið byrjar inn á. Þetta snýst um að standa sig á æfingum og í leikjum þegar þú færð tækifæri til að sýna þig,“ sagði Rúnar um Tibbling.