Búist við öðru tilboði frá Arsenal - Býr Fati til pláss fyrir Rashford? - Hvað verður um Tel?
   fös 13. desember 2024 14:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Orri Sveinn heldur tryggð við uppeldisfélagið (Staðfest)
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fylkir tilkynnti í dag að Orri Sveinn Segatta væri búinn að skrifa undir nýjan tveggja ára samning við félagið.

Síðustu vikur hefur framtíð Orra verið í óvissu og var hann í síðasta mánuði orðaður í burtu frá félaginu. Hann hefur ákveðið að taka slaginn áfram með uppeldisfélaginu.

„Er það mikið fagnaðarefni að Orri hafi valið að vera áfram í appelsínugulu enda verið gríðarlega mikilvægur leikmaður undanfarin ár og var valinn besti leikmaður Fylkis árið 2023," segir í tilkynningu Fylkis.

Orri á alls að baki 255 leiki og 27 mörk fyrir Fylki, þar af 120 leiki og 15 mörk í efstu deild. Hann lék sína fyrstu leiki fyrir meistaraflokk Fylkis árið 2014. En meistaraflokksferil hans hófst svo fyrir alvöru þegar hann lék á láni fyrir Huginn á Austurlandi en hann lék með þeim árin 2015 og 2016.
Hann varð síðan fastamaður í vörn Fylkis árið 2017 og hefur verið það allar götur síðan.

Fylkir greindi einnig frá því í dag að Olivier Napiorkowski væri búnn að skrifa undir sinn fyrsta samning við félagið. Hann er fæddur 2009 og því enn í 3. flokki. Hann hefur æft með meistaraflokki í upphafi nýs tímabils og var í nóvember valinn í U16 ára landslið Íslands. Olivier, sem skrifar undir þriggja ára samning, er fljótur örvfættur vængmaður/bakvörður.
Athugasemdir
banner
banner