14.01.08 - 10:04
Magnús Már Einarsson
Sveinbjörn Jónasson í Fjarðabyggð (Staðfest)

Sveinbjörn í leik með Huginn.

Mynd: Leiknir.com - Matthías Ægisson

Sveinbjörn í leik með Huginn.

Mynd: Leiknir.com - Matthías Ægisson
Fjarðabyggð hefur fengið sóknarmanninn Sveinbjörn Jónasson til liðs við sig en hann kemur frá Huginn.
Sveinbjörn sem er 21 árs skrifaði í gær undir tveggja ára samning við Fjarðabyggð en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins.
Sveinbjörn hefur verið lykilmaður hjá Huginn undanfarin ár og þrátt fyrir ungan aldur hefur hann leikið með meistaraflokki í sex ár.
Í sumar skoraði hann fimmtán mörk í þrettán leikjum í þriðju deildinni með Huginn.

Heimild: Heimasíða Fjarðabyggðar