14.01.08 - 17:36
Hafliði Breiðfjörð
Theodór Elmar Bjarnason til Lyn (Staðfest)

Theodór Elmar Bjarnason í landsleiknum gegn Dönum í nóvember.

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson

Theodór Elmar Bjarnason landsliðsmaður Íslands gekk í dag til liðs við norska úrvalsdeildarfélagið Lyn í Osló og skrifaði undir samning þessa efnis við félagið í Noregi.
Hann flýgur svo til Skotlands á morgun þar sem hann mun kveðja fyrrum liðsfélaga sína hjá Glasgow Celtic þar sem hann hefur verið undanfarin ár og hefur æfingar með Lyn í byrjun næstu viku.

Theodór Elmar er eitt mesta efni sem er að koma upp í íslenskri knattspyrnu. Hann er 20 árs gamall og var í byrjunarliði íslenska landsliðsins í síðasta leik liðsins gegn Dönum á Parken í nóvember en þetta var fyrsti landsleikur liðsins undir stjórn Ólafs Jóhannessonar.
Hann hóf meistaraflokksferil sinn hjá KR árið 2004 er hann lék 10 leiki með liðinu í Landsbankadeild karla og einn í bikarnum. 20. desember það ár gekk hann svo í raðir Glasgow Celtic í Skotlandi þar sem hann hefur verið síðan.
Hann hefur verið viðloðandi aðalliðið hjá Celtic og fékk sitt fyrsta tækifæri með aðalliðinu í maí gegn Hibernian þar sem hann var valinn maður leiksins í 2-1 tapi. Þrátt fyrir það hefur hann fá tækifæri fengið með liðinu síðan.
Hann gekk því til liðs við Lyn í Noregi í og hittir þar fyrir Indriða Sigurðsson landsliðsmann Íslands sem einnig leikur með Lyn.
Theodór Elmar á að baki 3 landsleiki fyrir Íslands hönd og hefur leikið með U17, U19 og U21 árs landsliðum Íslands einnig.
Norska félagið gerir þar með annað tækifæri til að fá kantmann úr íslenska landsliðinu til liðs við sig því Emil Hallfreðsson kom til þeirra í fyrrasumar en var seldur til Reggina á Ítalíu nokkrum dögum síðar.