14.02.08 - 23:16
Hafliði Breiðfjörð
Gunnar Sigurðsson í FH (Staðfest)

Gunnar Sigurðsson í leik með Fram í 1. deildinni sumarið 2006.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Markvörðurinn Gunnar Sigurðsson er genginn í raðir FH og hefur gert samning við félagið út þetta ár. Þetta staðfesti Lúðvík Arnarsson varaformaður knattspyrnudeildar FH í samtali við Fótbolta.net í kvöld.
Gunnar sem er 33 ára gamall hefur mikla reynslu úr fótboltanum. Hann hefur áður leikið með ÍBV, KFS, Brage í Svíþjóð og Fram þar sem hann lék síðast í Landsbankadeildinni árið 2005.
Hann lék með Fram í 1. deild sumarið 2006 er liðið tryggði sér sæti í Landsbankadeildinnii að nýju en ákvað eftir það sumarið að leggja skóna á hilluna. Skórnir voru þó ekki fastir þar því hann tók þá fram að nýju til að leika tvo leiki með KFS frá Vestmannaeyjum í þriðju deildinni síðastliðið sumar.
Gunnar sem á að baki 115 leiki í efstu deild hér á landi hefur æft með FH síðan fyrir áramót og tók svo ákvörðun um að semja við félagið í gær.
Hjá FH mun hann berjast um markmannsstöðuna við Daða Lárusson sem er sá leikmaður sem hefur leikið langflesta leiki í röð í efstu deild karla, 126 leiki eða alla leiki FH í efstu deild síðan liðið komst upp úr 1. deildinni um aldamótin.