Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 14. febrúar 2021 05:55
Victor Pálsson
England í dag - Arsenal og Man Utd eiga leiki
Mynd: Getty Images
Það eru nokkrir áhugaverðir leikir á dagskrá á Englandi í dag en leikið er frá hádegi til kvölds og eru fjórir leikir í boði.

Dagurinn hefst með leik Southampton og Wolves en þessi lið mættust í bikarnum í vikunni þar sem það fyrrnefnda hafði betur.

Svo tekur við leikur West Bromwich Albion og Manchester United en West Brom þarf á kraftaverki að halda ætli liðið að halda sér í efstu deild.

Arsenal spilar við Leeds heima eftir það og svo mæta Gylfi Þór Sigurðsson og liðsfélagar í Everton liði Fulham um kvöldið.

Gylfi átti magnaðan leiik gegn Tottenham í bikarnum í vikunni og skoraði þar eitt ásamt því að leggja upp þrjú í 5-4 sigri.

Sunnudagur, 14. febrúar

Enska úrvalsdeildin:
12:00 Southampton - Wolves
14:00 West Brom - Manchester United
16:30 Arsenal - Leeds
19:00 Everton - Fulham
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner