Fotbolti.net
04.07.26 - 17:35
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Óli Skúla: Skagamenn eru örugglega á öðru máli en okkur er alveg sama

Auglýsing
Óli Skúla: Skagamenn eru örugglega á öðru máli en okkur er alveg sama
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Breiðablik lagði ÍA af velli á Akranesi í dag. Fótbolti.net ræddi við Ólaf Inga Skúlason, þjálfara Breiðabliks, eftir leikinn.
Lestu um leikinn: ÍA 1 - 2 Breiðablik
„Erfiður leikur. Pínu skrítið að segja það, völlurinn er í góðu ásigkomulagi en þegar grasið er svona þurrt er erfitt að fá flæði í leikinn og það litast aðeins af því," sagði Óli.

„Mér fannst við vinna fyrir þessu og vera sterkari aðilinn í seinni hálfleik. Mér fannst við skapa hættulegri stöður, Skagamenn eru örugglega á öðru máli en okkur er svo sem alveg sama. Stundum er þetta svoleiðis. Þetta var erfiður leikur að spila en ég er ánægður að við fundum leiðir."

Ólafur Ingi gerði skiptingar og breytti í fjögurra manna varnarlínu. Hann setti m.a. hinn 17 ára gamla Þór Andersen Willumsson inn á og hann skoraði sigurmarkið.

„Hann er gríðarlega góður og efnilegur leikmaður. Hann er búinn að taka mjög stór skref undanfarnar vikur og mánuði, verið mikið með okkur í vetur líka. Hann er á fleygiferð sem er frábært fyrir okkur. Við erum með fullt af frábærum ungum leikmönnum og þeir hafa verið að banka og gera sig gildandi," sagði Óli.

„Við höfum verið í miklu meiðslabrasi, einhverjir tíu frá. Þessir ungu hafa tekið gríðarlega stórt og flott skref."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.