Stórlið á eftir Igor Thiago - Andre Onana til sölu - Endrick ekki til sölu - Mörg lið á eftir framherja Brentford
   lau 14. febrúar 2026 21:01
Ívan Guðjón Baldursson
Howe kvartaði undan skrýtinni dómgæslu
Mynd: EPA
Newcastle United hafði betur á útivelli gegn Aston Villa í 32-liða úrslitum enska bikarsins í kvöld, eftir að hafa verið 1-0 undir í hálfleik.

Eddie Howe þjálfari svaraði spurningum eftir lokaflautið og gagnrýndi dómgæsluna. Tammy Abraham tók forystuna fyrir Villa og virtist vera í rangstöðu þegar boltinn fór af stað og svo átti Lucas Digne að fá dæmda vítaspyrnu á sig og rautt spjald þegar hann varði boltann með hendi innan vítateigs.

VAR-kerfið er ekki í gildi fyrr en í 16-liða úrslitum bikarsins og saknaði Howe þess sárlega.

„Þetta var einn af þessum leikjum þar sem hver einasta ákvörðun féll gegn okkur. Auðvitað eru dómararnir ekki að gera þetta viljandi, þetta er partur af leiknum og maður verður að samþykkja þetta," sagði Howe eftir endurkomusigurinn.

„Ég er mjög stoltur af strákunum fyrir að hafa hamið tilfinningarnar sínar en þetta var allt mjög skrýtið. Til dæmis hendin innan vítateigs, hún var mjög augljós. Ég gat séð hana frá varamannabekknum!

„Ég var smeykur um að þetta yrði einn af þessum dögum sem ekkert gengur upp en ég er mjög ánægður með að strákunum hafi tekist að brjóta niður mjög sterka vörn hjá Aston Villa til að ná í sigurinn."

Athugasemdir
banner
banner
banner