Stórlið á eftir Igor Thiago - Andre Onana til sölu - Endrick ekki til sölu - Mörg lið á eftir framherja Brentford
   lau 14. febrúar 2026 15:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Hræðilegar fréttir fyrir Newcastle
Mynd: EPA
Bruno Guimaraes, fyrirliði Newcastle, meiddist í sigri liðsins gegn Tottenham á þriðjudaginn og það hefur komið í ljós að hann gæti misst af tíu leikjum.

Newcastle vonast til að hann komi til baka eftir landsleikjahléið í mars. Hann mun missa m.a. af grannaslag gegn Sunderland og 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar ef liðið vinnur Qarabag.

Guimaraes er gríðarlega mikilvægur hlekkur í liði Newcastle en frá því hann gekk til liðs við félagið hefur liðið aldrei unnið leik þegar hann er ekki í byrjunarliðinu.

Guimaraes er 28 ára gamall brasilískur miðjumaður. Hann gekk til liðs við félagið frá Lyon árið 2022 og hefur spilað 189 leiki og skorað 31 mark. Hann var gerður að fyrirliða liðsins árið 2024.
Athugasemdir
banner