Stórlið á eftir Igor Thiago - Andre Onana til sölu - Endrick ekki til sölu - Mörg lið á eftir framherja Brentford
   lau 14. febrúar 2026 12:16
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Igor Tudor tekinn við Tottenham (Staðfest)
Mynd: EPA
Tottenham hefur staðfest að Igor Tudor muni stýra liðinu út tímabilið. Hann tekur við af Thomas Frank sem var rekinn eftir eftir aðeins tæplega átta mánuði í starfi. Síðasti leikurinn hans var 2-1 tap gegn Newcastle á dögunum.

„Igor gengur til liðs við okkur með skýra áherslu: að bæta frammistöðu, skila árangri og færa okkur ofar í úrvalsdeildinni. Markmið hans er einfalt – að koma með skipulag, ákefð og gera liðið samkeppnishæft á afgerandi stigi tímabilsins," segir í tilkynningu frá Tottenham.

Tudor hefur verið atvinnulaus síðan hann var rekinn sem stjóri Juventus í október. Hann hefur stýrt Lazio, Marseille, Galatasaray og Udinese á ferlinum.

„Það er heiður að ganga til liðs við þetta félag á mikilvægum tímapunkti. Ég skil ábyrgðina sem mér hefur verið falin og markmið mitt er skýrt. Að auka stöðugleika í frammistöðu okkar og keppa af sannfæringu í hverjum leik," sagði Tudor.

„Það eru mikil gæði í þessum leikmannahópi og mitt hlutverk er að skipuleggja hann, gefa honum orku og bæta árangur okkar hratt.“

Tottenham er í 16. sæti úrvalsdeildarinnar aðeins fimm stigum frá falli. Liðið hefur aðeins unnið tvo af síðustu 17 deildarleikjum.


Athugasemdir
banner
banner