Kvennalið Völsungs er búið að styrkja sig með landsliðskonu frá Gvatemala.
Sú heitir María Fernanda Contreras Muñoz og er 27 ára miðjumaður sem þekkir til á Íslandi eftir að hafa leikið með Haukum sumarið 2022.
María Fernanda, kölluð Mafer, gæti reynst afar mikilvægur hlekkur í ungu liði Völsungs sem leikur í 2. deild kvenna.
Þá eru Regína Margrét Björnsdóttir og Rakel Hólmgeirsdóttir búnar að skrifa undir samninga.
Regína, fædd 2008, gekk til liðs við Völsung um mitt sumar í fyrra og lék ellefu leiki á seinni hluta tímabils. Hún kom úr röðum HK og gerir eins árs samning á Húsavík.
Rakel, fædd 2006, er uppalin hjá Völsungi og gerir tveggja ára samning. Hún er gríðarlega fjölhæf og getur leyst margar stöður á vellinum.
Athugasemdir

