Man City nálægt því að krækja í Anderson - Liverpool vill Diomande til að fylla skarð Salah
banner
   lau 14. febrúar 2026 20:44
Ívan Guðjón Baldursson
Langt stopp í Boganum - Einar í sjúkrabíl
Lengjudeildin
Einar er til vinstri.
Einar er til vinstri.
Mynd: Grótta
Þór og Grótta eigast við í Lengjubikarnum þessa stundina og er fyrri hálfleikurinn í gangi þar sem Þór leiðir 1-0.

Stöðva þurfti leikinn í tæpar 20 mínútur vegna meiðsla þegar Einar Tómas Sveinbjarnarson virðist hafa fengið djúpan skurð á fæti eftir návígi.

Beðið var eftir sjúkrabíl og fór Einar á börum af velli og upp í sjúkrabíl eftir að gert hafði verið að sárum hans.

Mögulegt er að hér sé um alvarleg meiðsli að ræða.

Einar, fæddur 1999, lék 17 leiki í deild og bikar er Grótta vann sér aftur sæti í Lengjudeildinni í fyrra.
Athugasemdir
banner