Stórlið á eftir Igor Thiago - Andre Onana til sölu - Endrick ekki til sölu - Mörg lið á eftir framherja Brentford
   lau 14. febrúar 2026 16:00
Ívan Guðjón Baldursson
Patryk skiptir til Fjölnis (Staðfest)
Mynd: Fjölnir
Mynd: Fjölnir
Varnarmaðurinn Patryk Hryniewicki er búinn að skrifa undir samning við Fjölni eftir að hafa leikið fyrir uppeldisfélag sitt í Lengjudeildinni á undanförnum árum.

Patryk er hafsent fæddur um aldamótin og skoraði hann eitt mark í tíu leikjum í Lengjudeildinni í fyrra.

„Um er að ræða öflugan og hávaxinn varnarmann sem bætir styrk og festu í varnarleik liðsins. Stjórn og þjálfarateymi Fjölnis telja Patryk vera mikilvæga viðbót við leikmannahóp félagsins fyrir verkefnin fram undan," segir meðal annars í tilkynningu frá Fjölni.

Fjölnir féll úr Lengjudeildinni í fyrra og spilar því í 2. deild komandi sumar.

Þar að auki hefur Fjölnir gert þriggja ára samning við Birgi Þór Jóhannsson. Birgir er hraður og leikinn varnarmaður fæddur 2007 sem hefur staðið sig afar vel með liðinu á undirbúningstímabilinu í vetur.

Frammistaða hans hefur vakið athygli innan félagsins og þykir ljóst að hann er einn af efnilegri leikmönnum liðsins.

„Með samningnum tryggir Fjölnir sér áframhaldandi uppbyggingu á ungum og metnaðarfullum leikmanni sem félagið bindur miklar vonir við á komandi árum. Samningsframlengingin er liður í þeirri stefnu Fjölnis að byggja sterkan kjarna fyrir framtíðina," segir meðal annars í færslu frá Fjölni.


Athugasemdir
banner
banner
banner