Fotbolti.net
14.02.26 - 07:00
Ívan Guðjón Baldursson

Rúben Neves og Koulibaly búnir að framlengja (Staðfest)

Al-Hilal er ennþá taplaust á tímabilinu en síðasti tapleikur liðsins kom á HM félagsliða síðasta sumar, eftir að hafa slegið Manchester City úr leik.

Al-Hilal er ennþá taplaust á tímabilinu en síðasti tapleikur liðsins kom á HM félagsliða síðasta sumar, eftir að hafa slegið Manchester City úr leik.

Canon

Mynd: EPA

Stórstjörnurnar Rúben Neves og Kalidou Koulibaly hafa framlengt samninga sína við sádi-arabíska stórveldið Al-Hilal sem er að gera magnaða hluti undir stjórn Simone Inzaghi.
Neves var mikið orðaður við ýmis stór félagslið í Evrópu en hann hefur ákveðið að binda enda á sögusagnirnar með undirritun á nýjum skattfrjálsum risasamningi.

Neves gerir þriggja og hálfs árs samning út tímabilið sem endar 2029 á meðan Koulibaly gerir eins og hálfs árs samning sem endar sumarið 2027.

Neves, sem er 28 ára gamall, er mikilvægur hlekkur í sterku landsliði Portúgal og hefur komið með beinum hætti að 13 mörkum í 18 deildarleikjum á tímabilinu.

Koulibaly, 34 ára fyrrum leikmaður Chelsea og Napoli, er mikilvægur hlekkur í landsliði Senegal sem varð Afríkumeistari í janúar. Hann spilaði þó ekki úrslitaleikinn sökum meiðsla.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.