Fotbolti.net
14.03.05 - 13:59

Danny Blind ráðinn stjóri Ajax (Staðfest)

Danny Blind ráðinn stjóri Ajax (Staðfest)
Canon
Ajax hafa ráðið Danny Blind sem knattspyrnustjóra félagsins en Ronald Koeman sagði af sér fyrir skemmstu. Hann var yfirmaður unglingaþjálfunar hjá liðinu en akademía Ajax þykir vera eins sú allra besta í heimi.
Blind var á sínum tíma varnarmaður Ajax og hollenska landsliðsins en hann spilaði yfir 500 leiki í öllum keppnum á 13 tímabilum með liðinu en hann lagði skónna á hillinu í maí árið 1999.

Aðeins tveir leikmenn hafa leikið fleiri deildarleiki fyrir Ajax en hinn 43 ára gamli Blind. Hann lék 372 deildarleiki fyrir liðið á árunum 1986-1999. Sjaak Swart lék 463 leiki fyrir félagið og Wim Suurbier lék þá samtals 393.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.