14.03.06 - 16:04
Magnús Már Einarsson
Beitir lánaður til Aftureldingar (Staðfest)

Mynd: hk.is

Mynd: hk.is
HK úr fyrstu deild hefur lánað markvörðinn efnilega Beiti Ólafsson til Aftureldingar í annarri deild. Beitir mun því leika með Mosfellingum í vor og í sumar en HK getur þó kallað hann til baka með tveggja sólarhringa fyrirvara og þá mun hann fara í æfingaferð með Kópavogsliðinu til Danmerkur í vor.
Beitir hefur verið aðalmarkvörður 2. flokks HK undanfarin þrjú ár og hann var jafnframt aðalmarkvörður unglingalandsliðsins, U19, árið 2004. Hann hefur verið varamarkvörður hjá meistaraflokki HK undanfarin tvö ár en þar hefur Gunnleifur Gunnleifsson staðið á milli stanganna.
Með því að lána Beiti til Aftureldingar vill HK að leikmaðurinn fái til reynslu en á dögunum lánaði Kópavogsliðið annan leikmann í aðra deildina því þá fór miðjumaðurinn Jóhann Ingi Jóhannsson til Fjarðabyggðar.

Heimild: Heimasíða HK