14.03.06 - 16:52
Magnús Már Einarsson
Miles í Keflavík (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Bandaríski vinstri bakvörðurinn Geoff Miles hefur fengið leikheimild með Keflavík og getur hann því leikið með liðinu gegn Þór í deildabikarnum á sunnudaginn.
Miles sem er 24 ára lék þrettán leiki með Haukum í fyrstu deildinni á síðustu leiktíð en hann missti af lokaleikjunum eftir að hann varð fyrir því óláni að fá gervigrasrúllu yfir fótinn á sér þegar að verið var að leggja nýtt gervigras á Ásvelli.
Upphaflega kom Miles til Njarðvíkur í byrjun síðasta tímabils en hann fór til Hauka áður en mótið hófst og fékk nokkur atkvæði í vali á liði ársins í fyrstu deildinni hér á Fótbolti.net
Sjá einnig:
Komnir og farnir í Landsbankadeild karla