14.03.06 - 17:14
Magnús Már Einarsson
Björn Sigurbjörnsson í Leikni (Staðfest)


Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson


Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Miðju og sóknarmaðurinn Björn Sigurbjörnsson hefur gengið til liðs við Leikni úr fyrstu deild frá Aftureldingu en hann var reyndar í láni hjá Breiðholtssliðinu og spilaði með því í Reykjavíkurmótinu.
Björn sem er fyrrum leikmaður Þróttar og Víkings skoraði tvö mörk í þrettán leikjum með Aftureldingu í annarri deildinni á síðustu leiktíð en þau komu bæði gegn Selfyssingum í lokaumferðinni.
Hinn 24 ára gamli Björn var einmitt á skotskónum gegn Selfyssingum síðasta æfingaleik Leiknismanna en hann skoraði þá tvívegis í 4-0 sigri Breiðhyltinga.
Hinn 24 ára gamli Björn var einmitt á skotskónum gegn Selfyssingum síðasta æfingaleik Leiknismanna en hann skoraði þá tvívegis í 4-0 sigri Breiðhyltinga.
Heimild: Heimasíða Leiknis
