14.03.06 - 18:35
Hafliði Breiðfjörð
Fjalar Þorgeirsson í Fylki (Staðfest)

Leifur Garðarsson þjálfari Fylkis og Fjalar Þorgeirsson í dag.

Mynd: Fylkir

Leifur Garðarsson þjálfari Fylkis og Fjalar Þorgeirsson í dag.

Mynd: Fylkir
Fjalar Þorgeirsson er genginn í raðir Fylkismanna frá Þrótti en þetta kom fram í fréttatilkynningu frá félaginu nú í kvöld. Fjalar er uppalinn Þróttari og leikið þar alla tíð nema tímabilið 2000 og fram á sumar 2001 þegar hann lék með Fram.
Fylki er gríðarlega mikill fengur af Fjalari þar sem aðalmarkvörður félagsins Bjarni Þórður, hefur verið meiddur frá miðju síðasta sumri.
Þrátt fyrir uppskurð og meðferð hefur Bjarni ekki náð sér af meiðslunum og fer brátt í aðra aðgerð og verður frá æfingum næst 6 – 12 vikur.
Varamarkvörður Bjarna, hinn ungi og efnilegi Jóhann Sigurðsson, hefur varið mark Fylkis með stakri prýði í vetur og mun örugglega veita Fjalari verðuga samkeppni um stöðu aðalmarkvarðar.
Sjá einnig:
Komnir og farnir í Landsbankadeild karla

Fjalar Þorgeirsson og Hörður Antonsson við undirskriftina í dag.