14.03.07 - 16:12
Hafliði Breiðfjörð
Valur Fannar Gíslason til Fylkis (Staðfest)

Valur Fannar í búningi Fylkis.

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Valur Fannar í búningi Fylkis.

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Valur Fannar Gíslason gekk í dag í raðir Fylkismanna og gerði þriggja ára samning við félagið en hann kemur frá Val þar sem hann lék síðastliðið sumar. Hann hafði áður komið til Vals frá Fylki og er því að snúa aftur til síns gamla félags.
Valur Fannar er 30 ára Eskfirðingur og komst snemma í hóp efnilegustu knattspyrnumanna landsins. Hann var 16 ára gamall fluttur á mölina og hóf að leika með Fram, en þaðan lá leiðin til Arsenal og síðar Brighton á Englandi.
Þaðan fór hann til Strömsgodseti í Noregi áður en hann kom aftur heim og tók upp þráðinn með Fram.
Árið 2002 kom Valur Fannar svo til Fylkis og lék með liðinu til ársins 2005 og var meðal annars fyrirliði liðsins það ár. Síðastliðið sumar lék hann svo eins og áður sagði með Val, en hefur nú ákveðið að snú aftur “heim” og leika með Fylki á komandi árum.