14.03.08 - 10:30
Magnús Már Einarsson
Schmeichel til Coventry á láni (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Coventry hefur fengið Kasper Schmeichel á láni frá Manchester City út þetta tímabil.
Schmeichel, sem er 21 árs, getur leikið sinn fyrst leik með Coventry þegar að liðið mætir Sheffield Wednesday á morgun.
Chris Coleman stjóri Coventry hefur verið í leit að markverði og hann reyndi meðal annars að fá Ben Foster á láni frá Manchester United.
Hann hefur nú krækt í Schmeichel sem var í upphafi leiktíðar aðalmarkvörður Manchester City. Þessi ungi Dani missti síðan byrjunarlðissætið til Joe Hart og í kjölfarið fór hann til Cardiff á láni.
,,Kasper hefur sýnt á þessu tímabili að hann hefur alla burði til að verða toppmarkvörður í ensku úrvalsdeildinni og ég er ekki í vafa um að hann verður góð viðbót í hópinn," sagði Coleman við heimasíðu Coventry.

Heimild: Setanta Sports