Fotbolti.net
14.03.22 - 23:57
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Reynir: Grenjaði ekkert eðlilega mikið í gær og bað alla afsökunar

Auglýsing
Reynir: Grenjaði ekkert eðlilega mikið í gær og bað alla afsökunar
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
„Mér líst mjög vel á þetta en það á eftir kannsi að „sync-ast" betur inn þegar maður er búinn að ganga frá öllu með ÍR og byrjaður að mæta á æfingar með Fjölni. Þá fer þetta að verða meira ekta en tilfinningin til þessa er mjög góð og ég mjög einbeitttur á það sem er í gangi hjá Fjölni," sagði Reynir Haraldsson, nýr leikmaður Fjölnis.

Reynir var seldur frá uppeldisfélagi sínu ÍR til Fjölnis og ræddi hann við Fótbolta.net í dag.
„Fjölnir er þannig félag, grunnurinn er þannig að stefnan er að fara upp og það annað hvort tekst eða liðið er mjög nálægt því. Ég er mjög spenntur að fá stórt hlutverk í liði sem ætlar sér upp í efstu deild. Þeir sýndu mér hversu mikið þeir vildu mig með því að í fyrsta lagi kaupa mig og í öðru lagi að ganga svona á eftir mér."

Ferlið hafði tekið um það bil mánuð. „Það var miklu erfiðara að fara úr ÍR en ég bjóst við, oj maður, ef ég á að vera alveg hreinskilinn þá grenjaði ég ekkert eðlilega mikið í gær og bað alla afsökunar. Ég held að allir hafi skilið þetta eftir að hafa gefið mikið af mér til félagsins, spilað í tíu ár frítt og með glöðu geði. Mér fannst vera kominn tími til að hugsa um rassgatið á sjálfum mér. Ég held að ég muni vera með samviskubit alveg þangað til ÍR kemst upp," sagði Reynir.

Viðtalið í heild má sjá í spilaranum að ofan. Reynir er 26 ára gamall og spilar oftast sem vinstri bakvörður.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.