Lengjudeildarlið Njarðvíkur hefur sótt hægri bakvörðinn Stefán Gísla Stefánsson frá Val.
Stefán er fæddur árið 2006 og á að baki 20 landsleiki fyrir yngri landslið Íslands.
Hann ólst upp í Fylki en var fenginn til Vals fyrir síðustu leiki þar sem hann lék þrjá leiki í Bestu deildinni og skoraði eitt mark.
Stefán er nú mættur til Njarövíkur þar sem hann mun leika undir stjórn Davíðs Smára Lamude sem tók við liðinu eftir síðasta tímabil.
Bakvörðurinn lék sínar fyrstu mínútur í jafntefli gegn ÍA í Þungavigtarbikarnum í dag.
Athugasemdir


