14.04.07 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Sævar Eyjólfsson í Njarðvík (Staðfest)

Sævar Eyjólfsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sævar Eyjólfsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Framherjinn Sævar Eyjólfsson hefur gengið til liðs við fyrstudeildarlið Njarðvíkinga frá ÍBV. Sævar lék með Njarðvíkingum á sínum tíma, síðast árið 2001.
Alls á hann 82 leiki að baki með Njarðvíkingum og hefur hann skorað í þeim 72 mörk. Eftir að hafa yfirgefið Njarðvík árið 2001 lék Sævar með Haukum til ársins 2005.
Þá lék hann eitt sumar í Landsbankadeildinni með Þrótti og í fyrra lék hann þréttán leiki í Landsbankadeildinni með ÍBV.
Sævar sem verður 29 ára á þessu ári hefur þegar fengið leikheimild með Njarðvík og getur hann því leikið með liðinu gegn ÍH í Lengjubikarnum á morgun.
Sóknarmaðurinn Eyþór Guðnason verður hins vegar væntanlega ekki með Njarðvík í sumar. Eyþór hefur hafið æfingar hjá nýliðum HK í Landsbankadeildinni en hann er búsettur í Reykjavík.

Heimild: Heimasíða Njarðvíkur